Laut-samningur

Kristján Kristjánsson

Laut-samningur

Kaupa Í körfu

Aðsókn að Lautinni, sem er athvarf fyrir geðfatlaða á Akureyri hefur aldrei verið meiri en nú á nýliðnu sumri, en starfsemin hófst fyrir um þremur árum, haustið 2000, og hefur farið vaxandi upp frá því. Um var að ræða tilraunaverkefni á vegum Akureyrardeildar Rauða krossins, Akureyrarbæjar og Geðverndarfélags Akureyrar. Nú hafa fulltrúar þeirra skrifað undir nýjan samning um áframhaldandi starfsemi Lautar og er reksturinn þar með tryggður til næstu þriggja ára. Myndatexti: Kristján Jósteinsson, stjórnarmaður í Geðverndarfélagi Akureyrar, t.v., Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri og Sigurður Ólafsson, formaður Akureyrardeildar Rauða krossins, undirrituðu samninginn.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar