Mercedes Benz Actros

Mercedes Benz Actros

Kaupa Í körfu

RÆSIR afhenti á mánudag nýjan dráttarbíl af gerðinni Mercedes Benz Actros en að sögn Árna Árnasonar hjá Ræsi er bíllinn einn sá glæsilegasti sem Ræsir hefur afhent til þessa. Bíllinn, sem er í silfurgráum einkennislit Benz, er 10 hjóla og vegur 27,5 tonn. Lestarþungi með vagni er, skv. íslenskum reglum, allt að 49 tonn. Vélin er 580 hestöfl með 2700 Newtonmetra snúningsvægi, sem að sögn Árna er stærsta vél sem í boði er. Bíllinn er með alsjálfvirka 16 gíra skiptingu og tveggja þrepa mótorbremsu með allt að 408 hestafla hemlunarkrafti. MYNDATEXTI: Mercedes Benz Actros, nýr 10 hjóla lúxusdráttarbíll.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar