Myndbandahátíð 2003

Árni Torfason

Myndbandahátíð 2003

Kaupa Í körfu

Myndbandahátíð Myndmarks MYNDMARK, félag myndbandaútgefenda, sem m.a. gefur út blaðið Myndbönd mánaðarins hélt á laugardaginn árlega myndbandahátíð sína. Fór veislan fram í Versölum en um er að ræða hálfgerða uppskeruhátíð íslenska myndbandageirans. Samanborið við aðrar þjóðir er myndbandamenningin hérlendis sterk og veitt voru verðlaun í ýmsum flokkum fyrir það sem skara þótti fram úr á síðasta ári. Allir hlutaðeigendur myndbandageirans kættust saman af tilefninu, jafnt útgefendur sölu- og leigumyndbanda sem eigendur og starfsmenn hinna fjölmörgu myndbandaleiga. MYNDATEXTI: Írafár skemmti af valinkunnum myndarbrag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar