Grasagarðurinn kynning á ræktun á grænmeti

Þorkell Þorkelsson

Grasagarðurinn kynning á ræktun á grænmeti

Kaupa Í körfu

Þeir sem eru með matjurtagarð hafa aðgang að fersku og ódýru hráefni til matargerðar VAXANDI áhugi er á ræktun matjurta og kryddplantna hér á landi, segir Auður Jónsdóttir, garðyrkjufræðingur í Grasagarði Reykjavíkur. "Margir njóta þess að hafa komið sér upp blómlegum matjurtagarði og verða sér þannig úti um ferskt og ódýrt hráefni til matargerðar sem jafnframt er þeirra eigið," segir hún. Mikil aðsókn var til að mynda á tvö fræðslukvöld um krydd- og matjurtir sem haldin voru í samvinnu við Café Flóruna í garðinum í sumar, og komu um 100 manns til þess að hlýða á fyrirlesara í hvort sinn. MYNDATEXTI: Hvítlauk er vel hægt að rækta hérlendis.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar