Hausthátíð Breiðholtsskóla

Jim Smart

Hausthátíð Breiðholtsskóla

Kaupa Í körfu

HAUSTHÁTÍÐ Breiðholtsskóla var haldin í gær og ýmislegt var þar til gamans gert. Meðal þess sem var á dagskrá var skylmingakeppni í íþróttahúsinu þar sem mættust stálin stinn. Þá var handverksmarkaður og kökubasar fyrir gesti og gangandi og lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts lék fyrir gesti. Nemendur létu líka til sín taka og hljómsveitir nokkurra nemenda skólans stigu á stokk.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar