Storkurinn Styrmir

Jim Smart

Storkurinn Styrmir

Kaupa Í körfu

STORKURINN Styrmir var kvaddur í gær í sérstöku kveðjuhófi í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum, en hann mun yfirgefa landið á morgun og halda til Svíþjóðar. Þar mun Styrmir fá vist á storkabúi á Skáni, þar sem honum verður fundinn maki og honum síðan sleppt næsta vor. Storkar hafa ekki fasta búsetu hér á landi en í október í fyrra villtist Styrmir yfir hafið til Íslands. Í desember var hann fangaður austur á Héraði og fluttur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í Reykjavík, þar sem hann hefur dvalist í góðu yfirlæti og verið vinsæll meðal gesta. Síðasti vetur var honum þó nokkuð harður og verður Styrmir því eflaust feginn að komast í hlýrra umhverfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar