Möguleikhúsið

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Möguleikhúsið

Kaupa Í körfu

Á fjórtánda starfsári Möguleikhússins verður boðið upp á þrjár nýjar frumsýningar auk þess sem sex uppfærslur fyrri leikára verða teknar upp aftur. Fyrsta frumsýning vetrarins, á föstudaginn kemur, nefnist Tveir menn og kassi og er í leikstjórn hins danska Torkilds Lindebjergs, í febrúar verður frumsýnt nýtt leikrit eftir Ólaf Hauk Símonarson sem nefnist Hattur og Fattur í nýjum ævintýrum í leikstjórn Bjarna Ingvarssonar og með vorinu lítur dagsins ljós Landið Vifra sem er leikrit byggt á barnaljóðum Þórarins Eldjárns í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Myndatexti: Pétur Eggerz og Bjarni Ingvarsson hlýða á fyrirmæli leikstjórans Torkilds Lindebjergs.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar