Maritech

Jim Smart

Maritech

Kaupa Í körfu

HUGBÚNAÐARFYRIRTÆKIÐ Maritech, sem meðal annars sérhæfir sig í lausnum fyrir sjávarútveginn hefur verið valið sem samstarfsaðili Microsoft-fyrirtækisins bandaríska við þróun á lausnum sem byggjast á Microsoft Business Framework (MBF) forritunarumhverfinu sem er nýjasta viðbótin við .Net tækniumhverfið. Maritech kemst þar í sérvalinn hóp 14 fyrirtækja í Evrópu sem fá þannig aðgang að nýjustu tækninýjungum hjá Microsoft sem tryggir þeim forskot þegar þessar nýjungar fara í almenna dreifingu. MYNDATEXTI: Höfuðstöðvar Maritech hf. eru á 4. hæð í þessu húsi í Hlíðarsmára í Kópavogi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar