Nonni og Heiðar
Kaupa Í körfu
TVÆR villtar kanínur vappa um á hlaðinu fyrir framan húsið. Innandyra er önnur, sem húsráðendur, þeir Nonni og Heiðar, hafa tekið í fóstur. Hún heitir Fína-kanína og hleypur í felur þegar menn nálgast enda segja fóstrar hennar að kanínur séu tákn hræðslunnar. Heiðar fer út til að undirbúa upphitun á steinunum, sem nota á við athöfina, og hann notar tækifærið til að gefa hröfnunum, sem eru flögrandi þarna álengdar, í leiðinni. "Það er eins gott að hafa þá góða, þeir eru tákn töfranna," segir hann. Á meðan skoðar greinarhöfundur listaverk eftir Nonna, sem hanga á veggjum og eru í hillum um allt hús. Húsið er litskrúðugt, bæði að utan og innan, og ekki laust við að gömul fortíðarþrá geri vart við sig í brjóstinu. Þetta er notaleg tilfinning og engu líkara en að einhvers konar dulmagn hvíli yfir staðnum. Það lofar vissulega góðu. MYNDATEXTI: Fína-kanína er hrædd við menn enda eru kanínur tákn óttans. MYNDATEXTI: Nonni og Heiðar undir merki friðarins á húsveggnum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir