Sólmundur Hólm Sólmundsson og Páll Eiríkur Kristinsson

Árni Torfason

Sólmundur Hólm Sólmundsson og Páll Eiríkur Kristinsson

Kaupa Í körfu

Sólmundur Hólm Sólmundsson og Páll Eiríkur Kristinsson prýða forsíðumynd Árna Torfasonar. Kannski eru þeir að hugsa um ættjörðina eða jafnvel næstu helgi? Þeir eru báðir tvítugir vinirnir, sem útskrifuðust úr Menntaskólanum við Sund í vor þar sem þeir kynntust. Eitt sem hvílir áreiðanlega á huga þeirra þessa dagana er námið við Háskóla Íslands en Sólmundur, sem er Reykvíkingur, er byrjaður í sálfræði og Páll Eiríkur, sem er Reykvíkingur og hugsanlega Vestfirðingur líka, er í sagnfræði. Sólmundur segir að sér líki námið vel, það séu svolítil viðbrigði en mjög skemmtilegt og nauðsynlegt sé að vera í góðum leshópi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar