Rifjárn

Jim Smart

Rifjárn

Kaupa Í körfu

Sagan segir að fyrir rúmum áratug hafi húsmóðir í Ottawa gripið nýja gerð af raspi sem maðurinn hennar hafði komið með heim með sér, og rifið appelsínu á honum. Raspurinn virkaði svo vel að úr varð ný gerð af rifjárni fyrir eldhúsið. Rifjárn almennt eru þannig gerð að kýld eru göt á stálþynnu og skarpar brúnir gatanna eru síðan notuð til að rífa með. Þetta dugir þokkalega við flest það sem þarf að rífa en ýmislegt er erfitt eða ógerningur að rífa með slíku járni. Það virðist aftur á móti hægt að rífa hvað sem er með rifjárninu nýja sem heitir Microplane en yfirborð rifjárnsins sé alþakið hundruðum örsmárra rakblaða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar