Ólífuolía

Ásdís Ásgeirsdóttir

Ólífuolía

Kaupa Í körfu

Áhugamenn um góða matargerð eru ávallt á höttunum eftir góðum hráefnum. Og það er eins og að finna gull að rekast á ólífuolíu í hæsta gæðaflokki því mest af því sem hér er selt er af miðlungsgæðum ef ekki neðar. Í Kokku við Laugaveg er fáanleg olía frá Rieteine í Toskana. Rieteine er eiginlega vínframleiðandi en líkt og flestir bændur á þessum slóðum ræktar hann einnig olíur. Olían er fallega græn, sæt og bragðmikil. Þykk og mild. Lúxusolía sem maður notar ekki á pönnuna heldur á salötin og út á mat til að auka bragð.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar