Sveinn Heiðar Jónsson og Heiðar Jónsson

Kristján Kristjánsson

Sveinn Heiðar Jónsson og Heiðar Jónsson

Kaupa Í körfu

Mikil uppbygging stendur nú yfir á Akureyri og Austurlandi Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars á Akureyri hefur lengi verið í röð fremstu byggingafyrirtækja þar í bæ. Það var stofnað af þeim feðgum Sveini Heiðari Jónssyni og Jóni Gíslasyni árið 1963 og hefur starfað samfleytt síðan. Fyrirtækið er því fjörutíu ára á þessu ári. Sjálfur tók Sveinn Heiðar við rekstri fyrirtækisins 1986. Hjá því starfa nú tólf manns auk átján annarra fyrirtækja, sem vinna sem undirverktakar og samstarfsaðilar. MYNDATEXTI: Sveinn Heiðar Jónsson og Heiðar Jónsson, framkvæmdastjóri á byggingarsvæðinu við Arnarsíðu á Akureyri. Þar er Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars að hefja framkvæmdir við tvö raðhús, hvort um sig með fjórum íbúðum eða samtals 8 íbúðir. Fyrstu íbúðirnar verða væntanlega tilbúnar til afhendingar næsta sumar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar