Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars

Kristján Kristjánsson

Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars

Kaupa Í körfu

Mikil uppbygging stendur nú yfir á Akureyri og Austurlandi Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars á Akureyri hefur lengi verið í röð fremstu byggingafyrirtækja þar í bæ. Það var stofnað af þeim feðgum Sveini Heiðari Jónssyni og Jóni Gíslasyni árið 1963 og hefur starfað samfleytt síðan. Fyrirtækið er því fjörutíu ára á þessu ári. Sjálfur tók Sveinn Heiðar við rekstri fyrirtækisins 1986. Hjá því starfa nú tólf manns auk átján annarra fyrirtækja, sem vinna sem undirverktakar og samstarfsaðilar. MYNDATEXTI: Við Holtateig á Akureyri er Trésmíðaverkstæði Sveins Heiðars langt komið með að byggja 27 raðhús. Þetta eru timburhús á steyptum sökkli. Þau eru á einni hæð og um 140 ferm. að stærð með bílskúr.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar