Mótmæli vegna Kárahnjúkavirkjunar

Sverrir Vilhelmsson

Mótmæli vegna Kárahnjúkavirkjunar

Kaupa Í körfu

Hátt í eitt þúsund manns mótmæltu fyrirhuguðum framkvæmdum við Kárahnjúkavirkjun í og við ráðhús Reykjavíkur í dag, skv. upplýsingum frá lögreglu. Mótmælaspjöld voru tekin af fólki sem fór inn í ráðhúsið. Mótmælendurnir höfðu flestir stein meðferðis sem þeir lögðu í vörðu við inngang ráðhússins. Tjarnarsalurinn er fullur af fólki sem og gangar hússins. Þá hafa áhorfendapallar fyllst af fólki sem fylgist með fundi borgarstjórnar. Fundurinn hófst klukkan tvö og verður á honum afgreidd beiðni Landsvirkjunar um að Reykjavíkurborg ábyrgist lán.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar