Fallegir garðar á Blönduósi

Jón Sigurðsson

Fallegir garðar á Blönduósi

Kaupa Í körfu

FEGRUNARNEFND Blönduóss veitti fyrir skömmu viðurkenningar fyrir snyrtilegar lóðir í bæjarfélaginu fyrir árið 2003. Viðurkenningar fengu að þessu sinni hjónin Ragnar Ingi Tómasson og Anna Steinunn Guðmundsdóttir, Húnabraut 16, fyrir skipulagðan og vel hirtan garð. Nefndin veitti einnig ábúendunum Holta Líndal og Kristínu Jónsdóttur á bóndabýlinu Holtastöðum í Langadal viðurkenningu fyrir vel hirta og snyrtilega bújörð og fallegan og vel hirtan heimilisgarð. MYNDATEXTI: Kristín Jónsdóttir (lengst til vinstr), Anna Steinunn Guðmundsdóttir og Ragnar Ingi Tómasson fengu viðurkenningu. Á myndina vantar Holta Líndal.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar