Synt í austur vestur

Synt í austur vestur

Kaupa Í körfu

ÞAÐ er öllum hollt að hreyfa sig og sund er sívinsæl leið til þess að fá sína daglegu hreyfingu. Eftir sundið er svo fátt betra en að skella sér í pottinn og ræða um daginn og veginn þar til hitinn verður of mikill, eða bara setjast á bekkinn og spjalla um líðandi stund. Pottarnir eru líka sagðir besti staðurinn til að heyra slúður og kryfja fréttir dagsins til mergjar, og oft hægt að heyra fréttirnar á morgun í pottunum í dag ef menn leggja eyrun við og hlusta með athygli á þá sem hafa eitthvað nýtt að segja.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar