Ajax

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Ajax

Kaupa Í körfu

ÞEGAR dans- og tæknótónlist var að komast á legg í upphafi tíunda áratugarins var það "hardcore" sem var málið og einkenndist það einkanlega af hröðum töktum og helíumröddum. Hérlendis voru það Ajax sem voru kóngarnir í harðkjarnadanstónlistinni en sveitin var skipuð þeim Þórhalli Skúlasyni (nú eigandi Thuleútgáfunnar) og Sigurbirni Þorgrímssyni (Biogen). Sveitin gaf m.a. út á tólftommu lagið "Ruffige" sem náði talsverðum vinsældum. Þá er hægt að finna nokkur lög með sveitinni á disknum Icerave, sem þykir í dag hinn eigulegasti safngripur. MYNDATEXTI: Ajaxliðar, Bjössi og Þórhallur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar