þórustaðir II og VII
Kaupa Í körfu
Umhverfisnefnd Eyjafjarðarsveitar útnefnir árlega snyrtilegasta býli sveitarinnar. Að þessu sinni kom það í hlut fjölskyldnanna á Þórustöðum II og VII. Þar búa Örlygur Þór Helgason og Margrét Sigfúsdóttir á Þórustöðum II og sonur þeirra og tengdadóttir, Helgi Örlygsson og Vigdís Helgadóttir, á Þórustöðum VII. Kartöflurækt er stunduð í stórum stíl á jörðinni. Þá má nefna að býlin eru þekkt að sérlega smekklegum jólaskreytingum sem vakið hafa óskipta athygli sveitunganna. Viðurkenning var veitt í hófi í nýopnuðu Smámunasafni sem kennt er við Sverri Hermannsson í Sólgarði, en formaður umhverfisnefndar í Eyjafjarðarsveit afhenti fólkinu áritaðan skjöld þessu til staðfestingar. MYNDATEXTI: Snyrtilegt: Séð heim að býlunum Þórustöðum II og VII í Eyjafjarðarsveit.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir