Stakkahlíð, - Nýr leikskóli

Ásdís Ásgeirsdóttir

Stakkahlíð, - Nýr leikskóli

Kaupa Í körfu

Framkvæmdir Það var gaman hjá krökkunum á Sólbakka að taka fyrstu skóflustungurnar að nýja leikskólanum sínum. Um 35 hressir krakkar af leikskólanum Sólbakka tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum leikskóla við Stakkahlíð 19 síðasta föstudag. Leikskólinn er nú við Vatnsmýrarveg, á fyrirhuguðu vegstæði nýrrar Hringbrautar, og þarf því óhjákvæmilega að flytja hann fljótlega. "Þetta gekk mjög vel fyrir sig og krökkunum fannst þetta rosalega gaman," segir Bryndís Mattíasdóttir, leiðbeinandi á Sólbakka. "Þau elstu fengu að prófa litla gröfu, þau sátu hjá gröfumanninum og prófuðu að moka." Þau sem yngri voru voru líka hæstánægð með að grafa fyrir nýjum leikskóla með hefðbundnari verkfærum leikskólabarna, skóflum og fötum, sem hafa dugað þeim hingað til.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar