Minnisvarði vígður í Bolungarvík

Gunnar Hallsson

Minnisvarði vígður í Bolungarvík

Kaupa Í körfu

Minnisvarði um horfna, látna og drukknaða sem hvíla í fjarlægð var vígður í Grundarhólskirkjugarði í Bolungarvík síðastliðinn laugardag. Fjöldi fólks var viðstaddur vígsluna. Formaður sóknarnefndar, Einar Jónatansson, flutti ávarp, sr. Agnes Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík, helgaði minnisvarðann og flutti blessunarorð og kirkjukór Bolungarvíkur söng. MYNDATEXTI: Við minnismerkið: Gefendur og höfundur listaverksins. F.v. Einar K. Guðfinnsson, Elísabet Haraldsdóttir listamaður, Guðrún Guðfinnsdóttir, Haraldur Guðfinnsson og María Haraldsdóttir.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar