Bæjarbíó

Ásdís Ásgeirsdóttir

Bæjarbíó

Kaupa Í körfu

Heimildarmyndin Lífríki Hafnarfjarðar var frumsýnd í Bæjarbíói í gærmorgun klukkan 10. Myndin fjallar á skemmtilegan hátt um hið fjölbreytta dýralíf sem þrífst í nálægð við bæjarsamfélagið eða rétt við túnfótinn. Myndina vann hinn kunni kvikmyndagerðarmaður Páll Steingrímsson fyrir Hafnarfjarðarbæ. Öllum sjöttu bekkingum Hafnarfjarðar var boðið á frumsýninguna og skipt í tvo hópa, sem komu sinn á hvora sýninguna. Þá var öllum starfsmönnum Hafnarfjarðarbæjar boðið á sýningu í hádeginu. Myndatexti: Unga fólkið kunni afar vel við sig í fallegu umhverfi Bæjarbíós og kunni vel að meta myndina, enda um skemmtilega og fróðlega mynd að ræða.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar