Vildarbörn

Vildarbörn

Kaupa Í körfu

Styrkir úr sjóðnum Vildarbörn voru í fyrsta sinn afhentir fyrsta vetrardag til sjö barna og fjölskyldna þeirra. Sjóðurinn er starfræktur af Flugleiðum Icelandair og viðskiptavinum félagsins en sérstakur verndari sjóðsins er Vigdís Finnbogadóttir, fv. forseti Íslands, sem viðstödd var afhendinguna ásamt Sigurði Helgasyni, forstjóra Flugleiða, og eiginkonu hans, Peggy Helgason, Ragnhildi Geirsdóttur, stjórnarformanni sjóðsins, og fleiri forráðamönnum flugfélagsins. Athöfnin fór fram á Hótel Loftleiðum. Myndatexti: "Vildarbörnin" sjö ásamt fjölskyldum sínum og forráðamönnum sjóðsins og Flugleiða á Hótel Loftleiðum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar