Hestamannamót í Víðidal

Hestamannamót í Víðidal

Kaupa Í körfu

Gap reyndist vera um nýliðna helgi í mótaskrá hestamanna og voru keppnisglaðir menn á Faxaflóasvæðinu fljótir til að fylla upp í það, nokkurs konar flóabandalag var myndað í hvelli og boðið upp á opna gæðingakeppni, tölt og skeiðkappreiðar í Víðidalnum. Myndatexti: Sigurbjörn og Kári frá Búlandi voru með mjög góða sýningu í forkeppni B-flokks sem færði þeim þriðja sætið en spennandi verður að sjá Kára á næsta ári hjá Sigurbirni, en hann þykir lofa góðu þótt ekki sé hann neitt unglamb lengur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar