Lýsistankar

Líney Sigurðardóttir

Lýsistankar

Kaupa Í körfu

Lýsistankarnir við loðnuverksmiðjuna á Þórshöfn hafa á síðustu dögum hækkað töluvert því flokkur manna vinnur nú við að stækka þá, bæði fastir starfsmenn verksmiðjunnar og aðkomnir. Tönkunum er lyft með stórum tjökkum og viðbótin síðan logsoðin við þá. Eftir stækkun rúmar stærri tankurinn um 3.200 tonn af lýsi en sá minni 800 tonn og næsta skref er svo að gera varnarþró í kringum tankana og uppfylla þannig staðla um umhverfisvernd.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar