Grunnskólinn fær gjafir frá SM

Guðrún Vala

Grunnskólinn fær gjafir frá SM

Kaupa Í körfu

Fulltrúar Sparisjóðs Mýrasýslu komu færandi hendi í grunnskólann nýlega. Þær Guðrún Daníelsdóttir og Steinunn Ásta Guðmundsdóttir færðu öllum nemendum skólans sundtöskur og klukkur í stofurnar að auki. Ennfremur fékk sérkennsludeild skólans tvær tölvur til eignar. Gjafirnar eru veittar í tilefni af 90 ára afmæli Sparisjóðsins. Á myndinni afhendir Steinunn Ásta nemendum sundtöskur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar