Júgíó

Sverrir Vilhelmsson

Júgíó

Kaupa Í körfu

Nýjasta æðið í spilaheiminum eru kortaspilin Yu-gi-oh (borið fram júgíó). Spilin eru framleidd af tölvuleikjarisa í Japan og sama grunnhugmyndin liggur að baki: Teiknimyndir eru sýndar í sjónvarpi með þeim persónum sem eru á kortaspilunum og einnig eru framleiddir tölvuleikir með þeim. Aðalsöguhetjan í myndinni kemst yfir forn spil sem eru dýrmæt því þau eru gædd töframætti. Aðrir sækjast eftir djásnunum og því er þetta eilíf barátta og auðvitað stefnir aðalhetjan að því að verða besti spilarinn. Spilin fást m.a. í NEXUS og þar fengust þær upplýsingar að fleiri og eldri krakkar spiluðu Yu-gi-oh heldur en t.d. Pókemon

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar