Ísland- Pólland 33:32

Árni Torfason

Ísland- Pólland 33:32

Kaupa Í körfu

Ég held að við getum verið nokkuð sáttir við þessa þrjá leiki gegn Pólverjunum. Varnarleikurinn var að megninu til mjög góður, en við höfðum mestar áhyggjur af því fyrir leikina. Sóknarleikurinn var á köflum líka mjög fínn, en auðvitað var þetta mjög kaflaskipt, við lærðum á þá og þeir lærðu á okkur. Það er ekki alltaf hægt að finna sömu glufurnar en við leystum þetta nokkuð vel myndi ég segja," sagði Dagur Sigurðsson, fyrirliði landsliðsins í handknattleik. Myndatexti: Ólafur Stefánsson er hér tekinn föstum tökum af varnarmönnum Pólverja í Laugardalshöll í gærkvöldi. Ólafur hafði hægt um sig og skoraði þrjú mörk í leiknum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar