Snæfell fær stuðning

Gunnlaugur Árnason

Snæfell fær stuðning

Kaupa Í körfu

Á dögunum boðuðu stjórnendur Búnaðarbankans til fundar í Stykkishólmi til að kynna nýjan banka. Þá var undirritaður samstarfssamningur á milli Kaupþings-Búnaðarbankans og körfuknattleiksdeildar Snæfells. Samningurinn er við úrvalsdeildarlið Snæfells og yngri flokka félagsins. Myndatexti: Búnaðarbankinn stendur vel við bakið á körfuboltanum í Stykkishólmi í vetur. Heiðar Már Sigurðsson forstjóri og Kjartan Páll Einarsson, útibússtjóri í Stykkishólmi, undirrituðu samninginn fyrir hönd Búnaðarbankans og Sævar Harðarson og Gissur Tryggvason fyrir hönd Snæfells.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar