Snjókast

Þorkell Þorkelsson

Snjókast

Kaupa Í körfu

SKYNDILEGA varð allt hvítt og það var sem fólki væri kippt inn í veturinn á augabragði rétt fyrir hádegi í gær. Allir sem vettlingi gátu valdið nutu nýsnævisins, bjuggu til snjóhús eða fóru í snjókast. Að sjálfsögðu er það illur leikur að ráðast á aðra með ofurefli, en hér virðast tveir etja kappi saman og ólíklegt að stráksi hafi komist upp með að halda uppi ítrekuðum snjóboltaárásum á stúlkuna. Þessi snjór mun þó varla endast lengi því spáð er talsverðum hlýindum allt fram undir helgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar