Súlur - Númi Kárason

Kristján Kristjánsson

Súlur - Númi Kárason

Kaupa Í körfu

FJÖLDI fólks lagði leið sína í opið hús hjá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri, um liðna helgi. Tilefnið var að kynna starfsemi sveitarinnar vegna fjögurra ára afmælis hennar. "Við erum mjög sáttir með hvernig til tókst," sagði Skúli Árnason, formaður, í samtali við Morgunblaðið. "Á þriðja hundrað manns skrifuðu í gestabókina og voru margir undrandi yfir því hversu fjölbreytt starfsemi okkar er." MYNDATEXTI: Þótti afar spennandi: Yngri kynslóðin fékk að reyna klifurvegginn í húsnæði Súlna og hér er Númi Kárason kominn upp undir loft.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar