Hjálparstarf kirkjunnar - Söfnun

Þorkell Þorkelsson

Hjálparstarf kirkjunnar - Söfnun

Kaupa Í körfu

LANDSSÖFNUN fermingarbarna fór frá síðastliðinn þriðjudag þegar þau gengu í hús fyrir Hjálparstarf kirkjunnar. Þetta var í fimmta sinn sem fermingarbörn á Íslandi safna peningum til verkefna Hjálparstarfsins í Afríku. Börnunum var boðið að fá í heimsókn ungt fólk frá Pókot í Kenýa, þau Irene Doomo og Madanyang Salomon. Þau fræddu börnin um umskurð, stöðu kvenna, venjur við giftingar, veiðar og daglegt líf í Pókot. Í fyrra söfnuðust 4,7 milljónir króna. Söfnunin er orðin mikilvægur hluti í fjáröflun til verkefna Hjálparstarfs kirkjunnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar