Mávastellið
Kaupa Í körfu
MÁVURINN þykir ekki fegurstur fugla og raunar má segja að í íslensku fiskimannasamfélagi hafi hann frekar verið talinn til óþurftar en yndisauka. Engum manni dettur í hug að leggja sér mávinn til munns, en engu að síður hefur hann ratað á krásum hlaðin matarborð víða um heim, í listrænni hönnun mávastellsins svokallaða. Danska listhönnunarfyrirtækið Bing & Gröndahl hóf framleiðslu á mávastelli skömmu fyrir aldamótin 1900, og sú saga hefur komist á kreik að mávurinn hafi verið settur inn í mynstrið sérstaklega fyrir íslenskan markað. Það hefur ekki fengist staðfest, enda margt sem bendir til að mávurinn hafi farið víðar en til Íslands. Hitt er víst, að mávastell hafa alla tíð notið mikillar virðingar og vinsælda hér á landi. MYNDATEXTI: Skálar í mismunandi stærðum.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir