Fram

Sverrir Vilhelmsson

Fram

Kaupa Í körfu

Þó að það geti verið gaman að sitja inni og teikna eða föndra megum við ekki gleyma því að við þurfum líka að standa upp og hreyfa okkur. Til þess að okkur líði vel þurfum við nefnilega að hreyfa okkur reglulega og því hafa margir fullorðnir áhyggjur af því að krakkar eyði svo miklum tíma inni hjá sér að þau gleymi hreinlega að hreyfa sig. Það eru samt mjög margir krakkar sem stunda íþróttir af miklum krafti og sumir eru jafnvel farnir að stunda íþóttir löngu áður en þeir byrja í grunnskóla. Strákurinn á myndinni er einn þessara krakka en hann er í íþróttaskóla Fram sem er ætlaður krökkum á aldrinum þriggja til sex ára.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar