Dagný Guðmundsdóttir

Jim Smart

Dagný Guðmundsdóttir

Kaupa Í körfu

Dagný Guðmundsdóttir gefur upp nokkra bolta á sýningu sinni "Horfum á karlmenn" í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg. Í fyrsta lagi fjallar hún um líkamsdýrkunina í samfélaginu sem virðist einungis fara vaxandi með árunum. Hún segir að í vestrænum samfélögum séu fagrir og vel stæltir líkamar í hávegum hafðir, líkt og meðal forn-Grikkja, en á sama tíma sé líkamleg vinna ekki hátt skrifuð. Hún fjallar einnig um það hvernig við breytum líkamanum með æfingum. Þá er sýningin pólitísk með vísan sinni til umræðunnar síðustu daga um laun og aðbúnað erlendra starfsmanna við Kárahnjúka MYNDATEXTI: Karlmannslíkaminn bútaður niður á sýningu Dagnýjar Guðmundsdóttur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar