Bent Larsen

Bent Larsen

Kaupa Í körfu

Danski skákmeistarinn Bent Larsen, sem er Íslendingum góðkunnur fyrir mikið og gott samstarf við íslenskt skáksamfélag, var sæmdur fálkaorðunni við hátíðlega athöfn í gær. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, fagnaði Larsen innilega og rifjaði upp að einvígi Larsens og Friðriks Ólafssonar 1956 hefði verið afar eftirminnilegt og væri sennilega fyrsti alþjóðlegi viðburðurinn sem hann myndi eftir. Við þetta tækifæri drógu Bent Larsen og Friðrik Ólafsson um það hvor skyldi hefja leikinn í einvígi þeirra, sem hefst 11. nóvember. Larsen og eiginkona hans Laura Beatriz Benedini. Guðmundur Sigurjónsson ltv.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar