Íþróttastyrkir

Jim Smart

Íþróttastyrkir

Kaupa Í körfu

Lúðvík Geirsson bæjarstjóri hefur afhent fimm íþróttafélögum styrk vegna átta efnilegra hafnfirskra íþróttamanna, sem eiga möguleika á að vinna sér rétt til þátttöku í næstu Ólympíuleikum. Með þessu er bæjarfélagið að koma til móts við afreksmannastefnu íþróttahreyfingarinnar með sambærilegum hætti og fyrir síðustu Ólympíuleika. Eftirtalin íþróttafélög fengu styrk: FH fyrir frjálsar íþróttir, Þytur fyrir siglingar, SH fyrir sund, Björk fyrir fimleika og tae kwon do og BH fyrir tennis. Þeir sem hlutu styrkina eru Þórey Edda Elísdóttir, frjálsíþróttakona í FH, Hafsteinn Æ. Geirsson, siglingamaður í Þyt, Heiðar I. Marinósson, sundmaður í SH , Lára Hrund Bjargardóttir, sundkona í SH, Anja Ríkey Jakobsdóttir, sundkona í SH, Björn Þorleifsson, tae kwon do-iðkandi í Björk, Tanja B. Jónsdóttir, fimleikakona í Björk, og Andri Jónsson, tennisleikari í BH.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar