Muse beðið eftir miðum

Þorkell Þorkelsson

Muse beðið eftir miðum

Kaupa Í körfu

STÓR hópur fólks hafði safnast fyrir utan Skífuna á Laugavegi síðdegis í gær í þeim tilgangi að tryggja sér miða á tónleika bresku sveitarinnar Muse sem haldnir verða í Laugardalshöll 10. desember nk. en miðasala hófst í morgun. Það lá vel á unga fólkinu sem hafði sumt hvert gítar með í för og skemmti sér við söng í þeirri von að tíminn yrði fljótari að líða. Sumir höfðu jafnvel bók meðferðis og aðrir höfðu jólasveinahúfu á höfði og létu tímann líða með því að spjalla við félaga sína. Miðar á tónleikana eru seldir í verslunum Skífunnar og einnig í Pennanum-Eymundsson, Akureyri, Hljóðhúsinu, Selfossi, og Pennanum-Bókabúð Andrésar, Akranesi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar