Íslensku gæðaverðlaunin

Íslensku gæðaverðlaunin

Kaupa Í körfu

DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra afhenti forstjóra Sjóvár-Almennra trygginga, Einari Sveinssyni, Íslensku gæðaverðlaunin 2003 í gær. Í umsögn dómnefndar Íslensku gæðaverðlaunanna, sem Gæðastjórnunarfélagið veitir, kemur fram að stjórnun og stefnumörkun Sjóvá-Almennra einkennist annars vegar af formföstum aðferðum sem byggjast á traustum faglegum grunni og hins vegar á því sem virðist vera traust og virðing milli starfsmanna og stjórnenda. Siðareglur hafa verið skilgreindar og virðast starfsmenn meðvitaðir um þær og tilgang þeirra. MYNDATEXTI: Davíð Oddsson forsætisráðherra afhenti Einari Sveinssyni, forstjóra Sjóvár-Almennra, viðurkenningu í gær en félagið hlaut íslensku gæðaverðlaunin 2003. Gæðastjórnunarfélag Íslands veitir verðlaunin.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar