Gufuneskirkjugarður

Jim Smart

Gufuneskirkjugarður

Kaupa Í körfu

Minnisvarði var afhjúpaður í austanverðum Gufuneskirkjugarði í vikunni en honum er ætlað að vera athvarf fyrir fólk sem vill minnast ástvina sem hafa horfið en eiga sér engan legstað eða látinna ástvina sem hvíla í öðru landi. Frá árinu 1945 til 2002 hafa 47 manns horfið sporlaust og eru þá ekki taldir með þeir menn sem hafa farist við störf á sjó. Listaverkið er eftir listakonuna Rúrí en hún vann samkeppni sem Kirkjugarðar Reykjavíkurprófastsdæma efndu til árið 2001. Verkið heitir Hlið MYNDATEXTI: Verkið Hlið er um 13 metrar að þvermáli og þrír metrar á hæð. Í Hliðinu er raflýsing sem lýsir upp altari skálans og nánasta umhverfi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar