Hönnunarsýning í Reykjarnesbæ

Helgi Bjarnason

Hönnunarsýning í Reykjarnesbæ

Kaupa Í körfu

Sýning um hönnun og hugmyndir að betri bæ verður opnuð í Kjarna í Hafnargötu 57 í Keflavík á morgun, laugardag. Sýndar verða teikningar og ljósmyndir sem tengjast framkvæmdum í bænum og óskað eftir nýjum hugmyndum frá gestum. Reykjanesbær stendur fyrir sýningunni í samvinnu við Arkitektastofu Suðurnesja, Upplýsingamiðstöð Reykjaness, Vegagerðina og miðbæjarsamtökin Betri bæ. Bjarni Marteinsson arkitekt og Rannveig Lilja Garðarsdóttir á upplýsingamiðstöðinni hafa undirbúið hana. MYNDATEXTI: Rannveig og Bjarni: Rétti tíminn fyrir hugmyndirnar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar