Áskrikja

Áskrikja

Kaupa Í körfu

KÓR Áskirkju flytur tvö verk á tónleikum í Áskirkju í dag kl. 17. Tónleikarnir eru hluti af tvöfaldri æfmælisdagskrá Áskirkju og eru hápunktur tónlistardagskrárinnar. Hinn 11. desember er 20 ára vígsluafmæli kirkjunnar og söfnuðurinn er 40 ára um þessar mundir. Kór Áskirkju er að formi til kammerkór sem er að mestu skipaður menntuðu og reyndu tónlistarfólki. Raddirnar eru frekar ungar, en meðalaldur kórfélaga er um 30 ár. Stjórnandi er Kári Þormar organisti. MYNDATEXTI: Kári Þormar ásamt einsöngvurum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar