Birgitta Haukdal á Húsavík

Hafþór Hreiðarsson

Birgitta Haukdal á Húsavík

Kaupa Í körfu

Birgitta Haukdal var í góðum gír á heimavelli síðustu helgi þegar hún, ásamt félögum sínum í hljómsveitinni Írafári, spilaði á tónleikum í íþróttahöllinni á Húsavík. Sýningu á söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu var aflýst síðastliðið föstudagskvöld vegna skyndilegra veikinda Birgittu. Hún var lögð inn á sjúkrahús vegna matareitrunar að því er talið var. Hún hlaut þó skjótan bata og virtist hafa náð fullri heilsu á laugardeginum. MYNDATEXTI: Birgitta var hin brattasta og heillaði heimamenn upp úr skónum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar