Jólaljósin upp

Steinunn Ásmundsdóttir

Jólaljósin upp

Kaupa Í körfu

Það fer víst ekki fram hjá neinum að jólaundirbúningur landans fer í hönd. Kaupfélag Héraðsbúa á Egilsstöðum lætur ekki sitt eftir liggja og reisti í gær myndarlegasta jólatré í miðbænum framan við verslun sína, svo sem það hefur gert um árabil. Tréð er á þrettánda metra og tveir einkar ötulir starfsmenn KHB, þeir Stefán Scheving og Hermann Eiríksson, skrýddu það jólaljósum í blíðviðri gærdagsins. Ekki verða þó ljósin tendruð fyrr en á laugardaginn kemur, en þá skjóta víst bæði jólasveinkar og jólakötturinn upp kollinum í miðbæ Egilsstaða. Stefán Scheving og Hermann Eiríksson setja ljós í jólatré

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar