Góðtemplarahúsið Suðurgata 7

Þorkell Þorkelsson

Góðtemplarahúsið Suðurgata 7

Kaupa Í körfu

Góðtemplarahúsið í Hafnarfirði er fyrsta húsið sem Góðtemplarar reistu hér á landi fyrir starfsemi sína. Húsið þótti stórt og rúmaði um 300 manns og segir sagan að allir Hafnfirðingar kæmust þar fyrir í einu. Þá bjuggu í Hafnarfirði rúmlega 400 manns. Það var stúkan Morgunstjarnan sem lét byggja húsið. Hugmyndin að þessu stórvirki kom fyrst fram á fundi sem haldinn var 4. október 1885, en þá hafði stúkan starfað í tvo mánuði og haldið fundi sína í gamla Flensborgarskólanum. Andres Guðmundsson, félagsmaður stúkunnar, var ákafur fylgismaður þess að hún réðist í byggingu hússins sem fyrst. MYNDATEXTI: Forstofan í Góðtemplarahúsinu, flísarnar eru þær upphaflegu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar