Kórar á Flúðum

Sigurður Sigmundsson

Kórar á Flúðum

Kaupa Í körfu

ÞAÐ hljómaði sannarlega fagur söngur í aðalsal Félagsheimilisins á Flúðum síðdegis á laugardaginn í seinustu viku. Þrír kórar komu fram: Árnesingakórinn í Reykjavík undir stjórn Gunnars Ben., Samkór Selfoss sem Edit Molnár stjórnaði en undirleikari var Miklos Dalmay og Vörðukórinn sem starfar í uppsveitum Árnessýslu. Stefán Guðmundsson stjórnar honum en undirleikari kórsins er Katrín Sigurðardóttir. MYNDATEXTI: Tæplega eitt hundrað manns voru á sviðinu þegar allir kórarnir sungu saman.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar