Grindavík - Keflavík 92:90

Jim Smart

Grindavík - Keflavík 92:90

Kaupa Í körfu

Grindvíkingar eru enn ósigraðir og tróna á toppi úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik eftir að hafa lagt lið Keflavíkur með minnsta mun 92:90. Heimamenn náðu mest 24 stiga forystu í síðari hálfleik en engu munaði að gestirnir næðu að knýja fram sigur undir lokin. Grindvíkingar eru nú komnir með fjögurra stiga forystu í deildinni, eru með 16 stig eftir átta umferðir og standa mjög vel að vígi. Myndatexti: Darrel Lewis var í miklum ham með Grindvíkingum í gærkvöld og skoraði 36 stig þegar lið hans lagði Keflvíkinga, 92:90, í úrvalsdeildinni í körfuknattleik. Hér eru tvö þeirra í uppsiglingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar