Grindavík - Keflavík 92:90

Jim Smart

Grindavík - Keflavík 92:90

Kaupa Í körfu

Grindvíkingar eru enn ósigraðir og tróna á toppi úrvalsdeildarinnar í körfuknattleik eftir að hafa lagt lið Keflavíkur með minnsta mun 92:90. Heimamenn náðu mest 24 stiga forystu í síðari hálfleik en engu munaði að gestirnir næðu að knýja fram sigur undir lokin. Grindvíkingar eru nú komnir með fjögurra stiga forystu í deildinni, eru með 16 stig eftir átta umferðir og standa mjög vel að vígi. Myndatexti: Grindvíkingurinn Jóhann Ólafsson geysist í áttina að körfu Keflvíkinga en til varnar er Nick Bradford.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar