Þormóður rammi Sæberg hf.

Þormóður rammi Sæberg hf.

Kaupa Í körfu

Nú í haust fékk Þormóður rammi-Sæberg í Þorlákshöfn viðurkenningu frá Icelandic í Bandaríkjunum fyrir gæði þeirrar vöru sem seld er þangað. Var viðurkenningin afhent núna á þriðjudaginn er Jón Jóhannesson frá Icelandic í Bandaríkjunum kom í heimsókn. Þær vörur sem Þormóður rammi-Sæberg selur helst í gegnum Icelandic eru roðlaus sandkola-, skrápflúru- og langlúruflök sem seld eru beint til stórmarkaða í New York og hefur sú sala jafnt og þétt verið að aukast. Einnig hefur Icelandic keypt lítið magn af humarhölum MYNDATEXTI: Jón Páll Kristófersson rekstrarstjóri og Ásgeir Jónsson verkstjóri taka við viðurkenningunni frá Jóni Jóhannessyni, starfsmanni Icelandic í Bandaríkjunum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar