Kárahnjúkar - kaþólsk messa
Kaupa Í körfu
Kárahnjúkar | Við biðjum Guð og heilaga Barböru að blessa þessa framkvæmd og vernda þá sem hér vinna fyrir slysum og óhöppum," sagði prestur kaþólskra, sr. Patrick, í hátíðarmessu í Kárahnjúkavirkjun í gær. Mikið var um dýrðir á virkjunarsvæðinu og hófst dagskrá með messu í aðkomugöngum 1, þar sem sr. Patrick hafði kaþólska messu með fyrirbænum og blessun. Um fjörutíu manns, karlar, konur og börn, voru messugestir í göngunum og hafði verið sett upp altari framan við borvagn, sem myndaði með sínum þremur örmum nokkurs konar tákn heilagrar þrenningar. Messugestir gengu til altaris og þáðu sakramenti og að því búnu var stytta af verndardýrlingnum Barböru, sem komið hefur verið fyrir hátt í gangaveggnum, blessuð. Vernd heilagrar Barböru nær til fjölmargra starfsgreina tengdra jarðvinnu, m.a. sprengiefnamanna, enda heita allar sprengiefnageymslur við virkjunina nafni hennar. MYNDATEXTI: Starfsmenn við Kárahnjúka fylgdust með blessun og fyrirbænum en var síðan boðið til dýrindisveislu þar sem íslenskt fjallalambahangiket og uppstúf fóru í bland við ítalskar kræsingar.
Arnþór Birkisson
Skoða myndirÁrni Sæberg
Skoða myndirÁsdís Ásgeirsdóttir
Skoða myndirEggert Jóhannesson
Skoða myndirEmilía Björg Björnsdóttir
Skoða myndirGolli / Kjartan Þorbjörnsson
Skoða myndirJúlíus Sigurjónsson
Skoða myndirKristinn Ingvarsson
Skoða myndirKristinn Magnússon
Skoða myndirÓlafur K. Magnússon
Skoða myndirÓmar Óskarsson
Skoða myndirRax / Ragnar Axelsson
Skoða myndirHelgi Sigurðsson
Skoða myndirÍvar Valgarðsson
Skoða myndirKristinn Pálsson
Skoða myndir